Akta
EignastýringSjóðirUm AktaEignastýringStarfsfólkFréttirSpurt og svaraðUpplýsingarEnglish

Fréttir

26. maí 2026

Akta Virði I - Nýr sérhæfður sjóður sem fjárfestir í innlendum hlutabréfum

Akta Virði I hs. er nýr sjóður í rekstri Akta sem fjárfestir í innlendum hlutabréfum. Markmið sjóðsins er að ná umframávöxtun yfir löng tímabil með fjárfestingum í félögum sem sjóðstjóri telur undirverðlögð á mismunandi mælikvarða og búa yfir traustum rekstrargrundvelli.

‍

Við stýringu sjóðsins verður lögð rík áhersla á agað fjárfestingarferli, ítarlega greiningu og virka eignastýringu. Akta Virði I mun fyrst og fremst fjárfesta í skráðum innlendum hlutabréfum, en getur jafnframt fjárfest í öðrum tengdum eignum samkvæmt fjárfestingarheimildum sjóðsins.

‍

Áhersla verður lögð á fyrirtæki sem hafa getu til að skapa verðmæti til lengri tíma, hvort sem það birtist í sterku sjóðstreymi, traustum efnahag, leiðandi markaðsstöðu eða skýrum hvötum til virðissköpunar.

‍

Sjóðstjóri Akta Virði I er Fannar Jónsson, sem hefur yfir 15 ára reynslu af fjárfestingum og greiningu á innlendum hlutabréfamarkaði.

‍

Frekari upplýsingar um Akta Virði I má finna á heimasíðu Akta. Sjóðurinn er sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta og starfar skv. lögum nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og er því opinn bæði almennum og fagfjárfestum.

‍

Nánari upplýsingar veitir Fannar Jónsson (fannar@akta.is).

Hugsa stórt.
Akta strax.

585 6800
akta@akta.is

Akta sjóðir hf.
Borgartún 25, 8. hæð
105 Reykjavík

Kt: 430713-0940
Nafnlaus ábending

Vefur Akta notar vafrakökur til að safna upplýsingum um umferð á vefnum til að bæta upplifun notenda og vegna auglýsingabirtinga. „Nánar um vafrakökur“.

Í LAGI