2. mars 2026
Akta Stutt Skuldabréf er nýr sjóður í rekstri Akta. Sjóðurinn leggur áherslu á íslenskan skuldabréfamarkað og hóflega vaxtaáhættu. Sjóðurinn hentar því vel sem hluti af lausafjárstýringu einstaklinga, fyrirtækja og fagfjárfesta.
Markmið Akta Stutt Skuldabréf er að ná samkeppnishæfri ávöxtun með fjárfestingum í innlendum skuldabréfum, þar á meðal ríkisskuldabréfum, skuldabréfum fjármálafyrirtækja og fyrirtækjaskuldabréfum. Við stýringu sjóðsins er lögð áhersla á virka stýringu á vaxta- og verðtryggingaráhættu, greiningu á vaxtakúrfum og álagsþróun, sem og góða dreifingu eigna.
Meðallíftími eignasafns sjóðsins skal að hámarki vera 3,5 ár. Með því er stefnt að hóflegri vaxtaáhættu og minni sveiflum en almennt gerist í skuldabréfasjóðum með lengri meðallíftíma. Sjóðurinn hentar því fjárfestum sem vilja taka þátt í ávöxtunarmöguleikum innlends skuldabréfamarkaðar með skýrum og afmörkuðum áhætturamma.
Stofnun sjóðsins endurspeglar aukna dýpt og virkni íslensks skuldabréfamarkaðar sem og eftirspurn fjárfesta eftir einfaldri og gagnsærri lausn á innlendum skuldabréfamarkaði með styttri vaxtaáhættu.
Sjóðurinn er stofnaður á grunni sjóðsins Akta VaxtaVeröld sem fjárfesti áður í erlendum skuldabréfum. Nafni þess sjóðs og fjárfestingarstefnu hefur nú verið breytt og Akta Stutt Skuldabréf litið dagsins ljós.
Sjóðstjóri Akta Stutt Skuldabréf er Fannar Örn Arnarsson sem stýrir einnig öðrum skuldabréfasjóðum Akta sjóða, þ.e. Akta Lausafjársjóðs, Akta Ríki og Akta VaxtaTækifæri.
Frekari upplýsingar um Akta Stutt Skuldabréf má finna á heimasíðu Akta. Sjóðurinn er sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta og starfar skv. lögum nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og er því opinn bæði almennum og fagfjárfestum.
Nánari upplýsingar veitir Fannar Örn Arnarsson (foa@akta.is).

Akta sjóðir hf.
Borgartún 25, 8. hæð
105 Reykjavík
Kt: 430713-0940
Nafnlaus ábending
Vefur Akta notar vafrakökur til að safna upplýsingum um umferð á vefnum til að bæta upplifun notenda og vegna auglýsingabirtinga. „Nánar um vafrakökur“.
Í LAGI