Markmið sjóðsins er að skila stöðugri ávöxtun með áherslu á góðan seljanleika. Sjóðurinn leggur áherslu á innlán fjármálastofnana og styttri skuldabréf svo sem ríkisbréf og sértryggð skuldabréf.
Stýringin byggir á mati sjóðsstjóra á verðlagningu á vaxtamörkuðum í samhengi við þætti eins og seljanleika, vaxtaáhættu og fjárhagslegan styrk mótaðila.
Hentar þeim sem vilja lágar sveiflur og mikinn sveigjanleika til að eiga viðskipti með lágum tilkostnaði. Sjóðurinn hentar bæði sem hluti af dreifðu eignasafni til lengri tíma og sem skammtíma fjárfestingarkostur. Sjóðurinn er opinn öllum fjárfestum.
Gengi
Stofndagur
Rekstraraðili
Árleg umsýsluþóknun
Viðmið
Kaup/Innlausn
ISIN
108.9.2022
Akta sjóðir hf.
0,45%
Á ekki við
T+1
IS0000034320
Stærð (í m.kr.)*
Lágmarkskaup
Rekstrarform
Gengismunur
Viðmiðunartími
3.857
10.000 kr
Fjárfestingarsjóður
0,0%
12:00
*Miðað við 31.10.2024
Fannar Örn starfar sem sjóðstjóri innlendra skuldabréfasjóða Akta og fagfjárfestasjóðsins Akta SK1. Fannar hefur starfað á innlendum fjármálamarkaði í 7 ár. Á árunum 2017-2020 starfaði hann í skuldabréfamiðlun Kviku banka. Árin 2020-2023 starfaði Fannar í eigin viðskiptum Kviku banka með áherslu á að stýra skuldabréfasafni bankans sem viðskiptavaki. Fannar er með B.Sc. gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Birgir starfar sem sjóðstjóri á sviði skuldabréfa- og blandaðra sjóða hjá Akta. Birgir hefur yfir 13 ára starfsreynslu á erlendum og innlendum fjármálamörkuðum. Á árunum 2010-2019 starfaði Birgir sem alþjóðasérfræðingur í New York og Genf í Sviss. Þar starfaði hann fyrir vogunarsjóðina Caxton Associates og Harness, fjárfestingarbankann Jefferies og greiningarfyrirtækið Nightberg. Birgir starfaði einnig í markaðsviðskiptum hjá Arctica Finance. Birgir er með M.A. gráðu í hagfræði frá New York University og B.Sc gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Þá hefur Birgir lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Aðilar geta beint fyrirmælum um kaup eða sölu í sjóðum Akta til síns viðskiptabanka. Allar almennar fyrirspurnir um sjóði skulu berast til Akta sjóða. Athugið að gjald fyrir afgreiðslu fer eftir verðskrá viðkomandi banka.
Arion banki
Verðbréfaþjónusta
Sími: 444-7000
Netfang: radgjof@arionbanki.is
Íslandsbanki
Verðbréfaráðgjöf
Sími: 440-4000
Netfang: verdbref@islandsbanki.is
Kvika banki
Verðbréfaþjónusta
Sími: 540-3200
Netfang: sjodir@kvika.is
Landsbankinn
Verðbréfaráðgjöf
Sími: 410-4040
Netfang: vl@landsbankinn.is