Akta sjóðir hf. („Akta“) notar vafrakökur (e. cookies) meðal annars til að mæla notkun notenda á vefsvæðinu akta.is og bæta þjónustu Akta. Vafrakökur gera Akta kleift að senda upplýsingar í vafra notenda sem getur auðveldað notendum aðgang með margs konar aðgerðum. Vafrakökur geyma ekki persónuupplýsingar en geta til dæmis innihaldið texta, númer og dagsetningar. Með því að samþykkja notkun Akta á vafrakökum er Akta m.a. veitt heimild til að sníða leit og þjónustu við gesti vefsins til samræmis við fyrri notkun þeirra og auðkenningu, að muna eftir fyrri aðgerðum, að þróa og bæta þjónustu vefsins akta.is og að safna upplýsingum um umferð og notkun vefsvæðisins.
Þú getur lokað fyrir notkun á vafrakökum í stillingum vafrans sem þú notar. Í flestum vöfrum er að finna leiðbeiningar um hvernig hægt er að slökkva á vefkökum.
Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vistaðar eru á tölvu eða öðrum snjalltækjum þegar vefsvæði Akta er heimsótt í fyrsta sinn. Þegar þú heimsækir vefsíðuna næst í sama tæki man það eftir þér og hvernig þú notaðir síðuna.
Akta notar vafrakökur í þeim tilgangi að bæta virkni vefsíðunnar með það að markmiði að bæta þjónustu við notendur. Akta notar vafrakökur til að sníða vefsvæðið að þörfum notenda t.d. til að vista stillingar notenda, til að vinna tölfræðilegar upplýsingar, til að greina umferð um vefsvæðið og í markaðslegum tilgangi.
Vefsíða Akta notar bæði eigin vafrakökur og kökur frá þriðja aðila. Eigin vafrakökur Akta eru kökur sem verða til á síðu Akta. Vafrakökur senda eingöngu upplýsingar til Akta.
Nauðsynlegar vafrakökur virkja eiginleika á vefsvæðinu sem verða að vera til staðar svo vefsvæðin virki eins og ætlast er til. Nauðsynlegar vafrakökur eru kökur frá fyrsta aðila sem eingöngu eru notaðar af Akta. Hér undir falla til dæmis kökur sem muna hvort notandinn er skráður inn á vefsvæði Akta eða hvaða sérstöku stillingar notandinn hefur valið.
Vafrakökur frá þriðja aðila eru vafrakökur sem verða til vegna aðgerða sem stafa frá öðrum aðila en þeim sem rekur síðuna sem þú ert að heimsækja, aðila sem Akta er í samstarfi við eða hagnýtir þjónustu frá. Vafrakökur þriðja aðila gera það að verkum að þessir aðilar geta þekkt tækið þitt aftur og eru tilkomnar vegna þjónustu sem Akta notar.
Vefsíða Akta notar vafrakökur sem tilheyra þriðju aðilum (t.d. Google og Facebook) til að greina umferð um vefsíðu Akta til að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn inn í notkun þess og gera leit að tilteknu efni auðveldari.
Vafrakökur frá þriðja aðila safna einnig upplýsingum um heimsóknir viðskiptavina á vef Akta, til að fylgjast með árangri auglýsinga og markaðsstarfsemi þeirra á netinu (til dæmis hversu oft notandi smellir á auglýsingu okkar). Þriðju aðilar safna ekki persónugreinanlegum upplýsingum. Vafrakökurnar eru ekki nauðsynleg forsenda fyrir notkun vefsvæðisins en gegna engu að síður mikilvægu hlutverki fyrir Akta þar sem þær greina notkun vefsvæðisins bæði hvað varðar fjölda notenda og hegðun notenda á vefnum, og svo Akta geti útbúið markaðsefni og auglýsingar sem eru sérsniðnar ákveðnum markhópum. Notendur vefsvæðisins geta nálgast upplýsingar um hvernig þessir aðilar nota vafrakökur á vefsíðum þeirra.
Vakin er athygli á því að þriðju aðilar, s.s. þeir sem veita markaðs- eða greiningarþjónustu á netinu, nota einnig vafrakökur. Upplýsingar um notkun þeirra á vafrakökum er hægt að finna á vefsíðum þeirra.
Notendur geta lokað á vafrakökur með því að breyta stillingum á vafra. Með þeim hætti geta notendur dregið til baka samþykki sitt fyrir notkun á vafrakökum. Athuga skal að ef lokað er á allar kökur, þ.m.t. nauðsynlegar kökur, mun það hafa áhrif á virkni vefsíðunnar.
Akta sjóðir hf.
Borgartún 25, 8. hæð
105 Reykjavík
Kt: 430713-0940
Nafnlaus ábending
Vefur Akta notar vafrakökur til að safna upplýsingum um umferð á vefnum til að bæta upplifun notenda og vegna auglýsingabirtinga. „Nánar um vafrakökur“.
Í LAGI